Hæhæ... Já ég held að málið sé að blogga smá....Margrét nebla bloggaði á www.blog.central.is/tuttudoktor og ég verð þá bara að blogga hérna;) en ef þið eruð að lesa þetta þá megið þið endilega kommenta elskurnar;* en allavega þá var árshátið Menntaskólans á Egilsstöðum haldin með miklum sóma síðastliðið Föstudagskvöld...hátíðin byrjaði með borðhaldi og skemmtiatriðum sem voru hrein snilld og maturinn var bara mjög fínn! svo var haldið inn í Egilsstaði með rútum frá Brúarási (þar sem þetta var haldið) og þar fór maður úr kjólnum og fór í ball dressið og svo var farið aftur með rútu inn í/á/til Brúarás og þar var haldið ball sem var bara gaman sko!! skemmti mér ógeðslega vel...nenni svo sem kanski ekki að blogga mikið um þetta en gef nokkra titla... * Fullust kvöldsins: Án efa Margrét Andersdóttir...sjiiiiit;* * Æði kvöldsins: Styrmir..þú varts æði í alvöru!! * Spjallari kvöldsins: Klárlega Steinar Berg á karlaklósettinu...ásamt Örvari í símann! * Dansfélagi kvöldsins...Margrét,Silja,Elva og Ásta...það er svo sjiiit gaman að dansa við Ástu! Svo bara eitthvað rugl...gaman að þessu en engilega kommentið... Myndir er að finna inni á www.123.is/pez www.123.is/bjartmar og bráðum www.blog.central.is/tuttudoktor -V-
28. nóvember 2006 klukkan 02:43
Sigurveig Sćdís Jóhannesdóttir 2 athugasemdir
Já...ég er í sálfræðitíma einmitt í þessum skrifuðu orðum...ég er alltaf að blogga á brjóstalækninum!! og ákvað þar með að skella einu leiðinlegu bloggi hérna inn ef einhver les það ennþá...en annars er ég að hugsa um að skella mér bara í pásu hérna...þannig að ég hvet alla sem skoða hér og kommenta...að fara inn á http://www.blog.central.is/tuttudoktor og lesa þar og kommenta!
En ég sem sagt var að fá út úr sálfræðiprófi hérna og ég féll!! BIGTÆM! fékk 3.7....en það eru 2 próf eftir og ég reyni bara að brillera á þeim!;) hef engar stórvægilegar áhyggjur! en allavega þá bara vildi ég hafa eitthvað að gera hérna í þessum tima...bless!
Vívi!
19. október 2006 klukkan 19:51
Sigurveig Sćdís Jóhannesdóttir 1 athugasemd
Ég er ekki hætt með þessa síðu en ég vil samt benda ykkur á síðuna sem ég á með vinkonum mínum;) www.blog.central.is/tuttudoktor Endilega kíkið á þetta;)
12. október 2006 klukkan 18:02
Sigurveig Sćdís Jóhannesdóttir Engin athugasemd
Ég nú ekki frá miklu að segja en þó einu sem ég vil endilega deila með ykkur og vil helst fá ykkar skoðun á málinu í komment! Því að persónulega finnst mér þetta vera ti háborinnar skammar...
Það var nú þannig að fyrr í kvöld fór litli bróðir minn inn í sjoppuna í plássinu með vini sínum og ætluðu þeir að kaupa sér hamborgara...bróðir minn verslar hamborgara þarna nánast vikulega ( ég veit það hljómar eins og hann sé lítill og feitur en hann er það ekki þrátt fyrir hamborgaraát) og hann biður alltaf um það sama,hamborgara BARA með osti og ENGA sósu! Það hefur nú aldrei verið neitt vandamál að uppfylla þessar óskir hjá honum...þangað til í kvöld þegar hann fer og biður um það sama og venjulega og jújú það er nú minnsta málið, en þegar hann fær borgarann þá er hann með sósu og káli...þessi litli snáði segir við afgreiðslumanninn sem er nú að nálgast sextugsaldurinn að hann hafi nú ekki beðið um þetta heldur bara með osti og enga sósu...afgreiðslumaðurinn gerðist svo kræfur að segja honum að hann gæti nú bara skafið þetta af og bennti honum á staðinn þar sem hnífapörin eru geymd!!!!! Sá stutti er nú ekki parsáttur með þetta og fer og hringir í pabba sem sendir stóru systir hans inneftir og hún fer inn og ræðir þar við afgreiðslumanninn! Og spyr hann að því hvort honum finnst það bara allt í lagi að gera þetta, ég meina hefði hann gert þetta við hvern sem er?? Sagt við ókunnugt fólk að það gæti bara skafið sósuna úr ef það vildi hana ekki??? en allavega hún segir við hann að hún vilji fá borgarann endurgreiddann og að hann þurfi ekki að hafa fyrir því að búa til nýjann!! og gengur svo út.... Nú spyr ég...finnst ykkur eðlilegt að maður sem vinnur við þjónustarf eins og þetta að hann komi svona fram við viðskiptavini?? fyrir utan það að strákurinn er 11 ára og ég meina maður rökræðir ekki við 11 ára barn um eitthvað svona... Ps. Fyrir utan það að þegar ég t.d. kem með honum og við erum að kaupa okkur hamborgara saman þá liggur við að maður þurfi ekki að pannta fyrir hann því þau eru með það á hreynu hvað hann vill enda er það nú ekki mjööög flókið...Ostur og engin sósa??? er þetta erfitt?? Endilega kommentið með ykkar skoðun;) Annars er bara allt gott að frétta af mér og mínum....ball á næstkomandi laugardag á Fásk með Magna og co. í ÁMS! og hver veit nema Toby næti á svæðið til að trylla líðinn...en hafið það bara gott og farið varlega í umferðinni;* -Víví;*
10. október 2006 klukkan 04:41
Sigurveig Sćdís Jóhannesdóttir 7 athugasemdir
Hæhæ... Ég veit ekkert um hvað ég á að blogga nú orðið...er rosalega léleg í þessum bloggum! En allavega, þá bara er ég búin að vera í skólanum alla vikuna, þetta sama og venjulega...gerðist reyndar HUGES SKRÓPARI á fimmtudaginn seinasta, mætti ekkert í skólann fyrir hádegi!!! Slæmur nemandi...jámm! En finnst það samt allt í lagi, er ennþá með fína mætingu!!
En allavega þá var föstudagur í gær og það var ball hérna í firðinum fagra Og ég var eitthvað bara heima,svo kom Ríkey til mín,við kíktum hring á Mustangnum sem ég fékk lánaðann yfir helgina, svo kíktum við aðeins heim til Halla og Unu, nenntum ekki að vera þar lengi, fórum annan hring og ég skutlaði henni aðeins heim og pikkaði Margréti upp...rúntaði smá með hana og eitthvað....ákvað svo að fara á ball, en fór ekki á ball strax því að Beggi,Halli og Arnar vinur þeirra, hringdu og ég skutlaði þeim á Sumarlínu...endaði með þvi að ég naði í þá aftur og Arnar fór heim, og ég, Halli og Beggi ætluðum á ball, fórum inn þegar það var svona klukkutími eftir eða eitthvað...annars bara fyrir utan...fór svo bara heim að sofa, þegar ég var búin að hitta alla sem mig langaði að hitta...
Fór svo í krónuna í morgun með mömmu, fór heim, var heima, fór smá rúnt áðan með Helga, og svo er ég búin að vera heima...frábær helgi!!!!!!!
ÖMURLEGT BLOGG en mér er alveg sama...
Víví kveður að sinni...;)
01. október 2006 klukkan 05:08
Sigurveig Sćdís Jóhannesdóttir 4 athugasemdir
Hæhæ... Já þessi helgi var bara fínasta skemmtun...föstudagurinn var þannig að litli bróðir minn átti afmæli og til hans komu annsi margir krakkar og ég þurfti að sinna þeim eins og þau væru mín eigin;) hehe kanski ekki alveg en allavega, þegar ég nennti ekki að vera heima lengur þá talaði ég við Ingólf og fór á rúntinn með honum,Brynjari og Sigga...hittum svo Birki og fórum yfir í bílinn hans og fórum á reyðarfjörð að taka bensín, en ég fór svo bara snemma heim því að ég þurfti að fara í vinnu klukkan 8...og ég fór í vinnu þá, og var að vinna til 7 þá fór ég heim...á Aygo!!! Agalegust!;) en svo bara í gærkvöldi fór ég í afmæli til Guggu,Karenar og Ómars, það var skemmtilegt...eða svona ágætt... Atburðir kvöldsins... * Óttar Már = LÉLEGUR í fatapóker og endaði NAKINN á eldhúsgólfinu heima hjá Ómari!! * Margrét = Gáfuð að hætta að spila póker áður en það færi út í rugl! * Ég = Bara þetta sama og venjulega...alltaf með eitthvað vesen! *Fanney = Án efa einhver fullasta manneskjan á staðnum! * Bróðir minn mætti á svæðið...hress eins og alltaf;) Well ég fór heim klukkan 4 í nótt og vaknaði svo í vinnu klukkan 10 í morgun og var að vinna til 4 þá fór ég heim og að þrýfa bílinn með Ásdísi og það var KALT!!! eitt orð yfir það! en svo fór ég heim að borða og svo í sturtu, og svo í singstar með Ásdísi og við erum klárlegar þær færustu í þeim leik!!!;* ENn svo fór ég uppeftir með Pétri og hér er ég...ein í herberginu eins og er, því Ríkey fór í sjoppuna! En bíð spennt eftir Margréti. bið bara að heilsa, ekki vera feimin við að kommenta..o.s.fr. DJ Víví;)
25. september 2006 klukkan 02:03
Sigurveig Sćdís Jóhannesdóttir 8 athugasemdir
*skólinn er byrjaður á fulli... *maður lærir eins og mófó....eða ætti allavega að gera það! *Ekki mikið búið að gerast í mínu lífi... *Ég er víst komin með einhvern hjúmongós rass! Veit ekki hvað er til í því? *Anna húsfreyja að koma brjáluð inn á herbergi vegna háfaða og fólks að hoppa í rúmum.....og að hlusta á einhver virkilega hæper tónlist! *Magni bara í 4 sæti í Supernova! * Lukas að fara að fronta Supernova....líst vel á það...hefði samt vilja sjá Toby minn gera það...en svo lengi sem Dilana vann ekki...var mér nokkuð sama;) * Vil sjá Magna fronta húsbandið...hvernig hljómar það? *Party hjá Ragnari í gær... *fullt af fólki...mest af busum samt en Busar eru frábærir;) *Nonni ekki að "komast" inn? HVað var það? *Ríkey var án efa einvher hressasta manneskjan í þessu party-i;* *Ég var bara róleg eins og venjulega!!! *Fór á Reyðarfjörð í dag, keypti vesti og peysu! *er að fara aftur þangað í eitthvað grill!!!? *Hvað á maður aðgera í kvöld? Party hjá Ragga eða?
Nenni ekki að gera neitt meira...bæjó;*;*;*
16. september 2006 klukkan 22:09
Sigurveig Sćdís Jóhannesdóttir 1 athugasemd
Jámm ég er einmitt að reyna að kreista fram bros hérna fyrir framan tölvuna! Eeeen það gengur ekkert alltof vel! Ég veit ekkert hvað ég á að gera af mér þannig að ég ætla að blogga! já ég fór nú í sturtu áðan og þegar ég var búin þá reyndi ég að finna Margréti en fann hana ekki, en áttaði mig þá á því að ég á lítið tæki sem kallast sími og ég bjallaði í stelpuna og þá er hún nú bara stödd í söluskálanum með Silju og Heiði, Ríkey er líka einhversstaðar úti, og ég er bara eitthvað ein! Einungis útaf því að ég vildi vera hrein og fín! það verðu nú að hafa það ég meina ég lifi af! Þarf bara að finna eitthvað skemmtilegt hrebergi sem inniheldur skemmtilegt fólk eða skemmtilegar DVD myndir! Og þá er ég nokkuð save!
Hey! Í fyrradag þá fór mamma mín til RVK og skildi bílinn eftir á flugvellinum og reyndi ða hringja í mig til að segja mér frá því en ég var ekki með símann minn á mér! Og þegar ég náði í símann þá voru 23 misst calls! geri aðrir betur! En allavega þá fór ég út á flugvöll og sótti bílinn, og fór svo bara eitthvað aftur upp á vist! En í gær þá langaði mig að fara heim á Fásk, og ég ákvað að henda Ríkey inn í bílinn og Silju líka, en þurfti reyndar líka að fara inn á Eskifjörð og þessa líka þvílíku leið til að komast heim til Egills(kærastinn hennar Silju) og þegar ég var búin að henda henni út þá fór ég heim, og þegar ég kom heim þá tók EINMANALEIKI!!! já, ég var mjöög einmana ung stúlka! En ég horfði nú á Ísland-Danmörk! Og jiii minn eini! hafa okkar strákar einhverntímann spilað jafn lélegann fótbolta?? allavega ekki svo ég muni í augnablikinu! Hef aldrei séð Hermann Hreiðars svona mikið út á þekju! en já ég er samt alltaf stolt af þessum elskum;) en svo bara fórum við Ríkey og Margrét uppeftir um kvöldið og að sofa....
Magni er komin í úrslit! Hvað er það frábært?? Gaman að kappinn skuli vera kominn svona langt! En ég held bara svei mér þá að ég hafi ekkert meira að segja í augnablikinu þannig að endilega kommentið eða eitthvað;)
Blesss! Víví;**
08. september 2006 klukkan 02:26
Sigurveig Sćdís Jóhannesdóttir 3 athugasemdir
Það er nú kominn tími til að ég bloggi smá hérna! Ég verð að viðurkenna að ég nenni aldrei að blogga! En ég ætla samt að halda þessari síðu uppi með því að reyna að blogga reglulega! núna er skólinn byrjaður og busunin fór fram á föstudaginn og verð ég að viðurkenna að þetta var slööööpp busun! Ég vorkenndi böðlunum bara! Máttu ekkert gera við busana! en allavega ég filgdist bara með eins og hinir og svo keyrðum við á eftir göngunni við Silja,Margrét A og Margrét S. og fórum niður þar sem "Ógeðisbrautin" var, og horfðum á þau hlaupa þar í gegn og borða bleik/fjólubláa grautinn sem þar var í boði! En svo var farið á planið og eitthvað, en svo var gangan og þetta tók allt voða lítinn tíma og svo fóru allir upp á vist í sturtu og eitthvað!
Um kvöldið var svo haldið busaball! kvöldið byrjaði þannig að við Elva,Margrét og Bjartmar fórum í söluskálann að fá okkur að borða, fengum okkur pítsu! og svo fórum við heim til Elvu og Bjartmars að gera okku klár/ar...og vorum þar í SingStar og horfðum á eitthvað klám! Einhver gella sem fékk svo mikla fullnægingu að það er eiginlega bara ólýsanlegt! ég meina þetta var bara fyndið! en allavega svo röltum við upp á vist og tókum svo rútu á Seyðis! mér leiddist nú á leiðinni og færði mig framar þar sem Elvar sat og ég settist þar ofan í BLAUTT sæti! Teddi "snillingur" helti niður bjór þar og ég varð rennandi! takk takk varð gífurlega kát við þetta. En svo bara þegar við komum á Seyðis þá var nú rigning og við fórum bara beint á ball, og það var ENGINN inni, svo stigu nú Mílanó á svið og þá lifnaði yfir fólkinu sem var þarna, og verð ég að segja að það var það skemmtilegast við þetta ball! Held að við hefðum bara átt að henda Atómstöðinni út og setja Mílanó á sviðið! en annars bara leiðinlegt ball og ekkert að gerast....var heima í gær og fór snemma að sofa, og er svo að fara uppeftir á eftir með Pétri og það er eintóm Gleði! en þar til næst þá bara bið ég að heilsa;)
Víví;*
03. september 2006 klukkan 23:18
Sigurveig Sćdís Jóhannesdóttir 1 athugasemd
Hæhæ...ég er nú að blogga í fyrsta skipti í langann tíma! Og viti menn! Ég er að nota tölvuna hans Vigga! Og Viggi er nú í reykivikinni!:D sem er nú áhugavert...þannig að Vignir ef þú lest þetta þá er tölvan þín í góðu lagi og ég er að nota hana!!!
En annars er skólinn bara byrjaður! Og núna tekur bara við stanslaus lærdómur! Er sko í fokking 21 einingu! en ég lifi gott fólk! Okay ég hef svo sem ekki neitt að segja svo að kommentið um komu ykkar hingað og ég er farin bless<:D
30. ágúst 2006 klukkan 21:11
Sigurveig Sćdís Jóhannesdóttir 2 athugasemdir